Linde Healthcare Realfund er ætlaður til að styðja og örva nýjar og nýstárlegar hugmyndir, rannsóknir og verkefni í tengslum við notkun á lofttegundum við ákveðnum meðferðarúrræðum í heilbrigðisþjónustunni. Það gæti t.d. verið lausnir sem stuðla að framförum á klínískum sviðum, öryggi, þægindum sjúklings, hreyfanleika, vinnuvistfræði eða hlutfalls kostnaðar/ávinnings; eða lausnir til að styðja nýjar umsóknir um meðferðir, fyrirbyggja eða greina sjúkdóma eða aðrar raskanir.
Tekið er á móti umsóknum frá heilbrigðisstarfsmönnum, samtökum sjúklinga, hugvitsmönnum og háskóla vísindamönnum. Realfund er ætlað að styðja verkefni fyrir nýja notkun lofttegunda, búnað fyrir örugga og áhrifaríka notkun lofttegunda eða vöktun á áhrifum og árangri meðferða sem byggjast á notkun lofttegunda sem og þar til gerðum vörum og þjónustu. Áhersla er lögð á bráða verkjameðferð, innöndunarlyf og meðhöndlun sára með lofttegundum (en án þess að útiloka efnilegar hugmyndir af öðrum sviðum)
Væntingar eru um að meðferðir sem byggjast á notkun lofttegunda og nýjunga í meðferðarbúnaði muni gegna mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustunni. Realfund stendur fyrir rannsóknir, þróun, sókn og forystu og loforð um að leggja okkar að mörkum fyrir sjúklinga, umönnunaraðila og lækningastofnanir.