Verkjastilling við minni aðgerðir
Verkir í tengslum við aðgerðir eru þeir verkir sem vart verður við í tengslum við aðgerðir sem framkvæmdar eru til greiningar og/eða lækninga. Þeir vara oft stutt og eru vægir.
Verkir barna eru oft vanmetnir af heilbrigðiskerfinu og þau fá því oft ekki nægilega verkjadeyfingu. Auk þess geta börn upplifað meiri hræðslu við aðgerðir á borð við nálarstungur, inndælingar og ásetningu sáraumbúða en fullorðnir þar sem þau skilja ekki alltaf hver ávinningurinn er.
Tvínituroxíð hefur róandi og verkjastillandi áhrif
Tvínituroxíð er staðfest og skráð lofttegund til þess að eyða verkjum. Þessi lofttegund hefur verið notuð í mörg ár til þess að draga úr verkjum við fæðingu, tannlækningar og við bráðaumönnun og umönnun í sjúkrabílum.
Tvínituroxíð hefur æskilega eiginleika og áhrif lyfs til meðferðar við verkjum í tengslum við aðgerðir hjá börnum. Það er bæði róandi og verkjastillandi. Auk þess þarf enga nál til þess að gefa tvínituroxíð og auðvelt er að stjórna lyfjagjöfinni. Verkjastillandi áhrifin koma fram á innan við mínútu og áhrifin hverfa hratt eftir að lyfjagjöf er lokið. Aukaverkanirnar eru vægar, en þær algengustu eru ógleði, svimi og það að „missa stjórnina“. En þessar aukaverkanir hverfa venjulega fljótt þegar lyfjagjöf með tvínituroxíði er hætt.
Barnið getur yfirgefið sjúkrahúsið u.þ.b. hálftíma eftir að aðgerð lýkur.